This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.
Gisting með öllum þægindum eða koja til að skella svefpokanum þínum í, hvaða óskir sem þú hefur þá á Hlið ferðaþjónusta eitthvað fyrir þig.
Hjá okkur getur þú verið frjáls í náttúrunni en átt hlýlegan stað til að fá endurnærandi nætursvefn. Hlíð ferðaþjónusta er fullkominn staður til að byrja og enda ævintýraferðir um náttúruperlur sem eiga engan sinn líka.
Umhverfið og dýralífið er ólíkt því sem gerist annarsstaðar á landinu og með því að gista hjá Hlíð ferðaþjónustu skapar þú þér aðstöðu til að njóta þess sem svæðið býður upp á, með meiri eða minni þjónustu eftir því sem þér hentar. Góð grunnþjónusta er að sjálfsögðu alltaf fyrir hendi, meðal annars þráðlaus nettenging.

Smáhýsið Aska
Sæktu orku fyrir daginn í hraunið sem rann fyrir 300 árum. Ef þú vilt gistingu fyrir tvo, með öllum þægindum, er smáhýsið Aska fullkomið fyrir þig. Þar er gott tvíbreitt […]
Lesa Meira- 25m2
- 2 manns
- 1 svefnherbergi
- Tvíbreitt rúm
- Sér baðherbergi með sturtu
- Eldhús
- Frítt net
- Verönd
- Grill

Sumarhús
Sælureitur fjölskyldunnar. Sumarhúsin tvö sem standa í hlíðinni, með útsýni yfir Mývatn, eru tilvalin fyrir fjölskyldur eða litla hópa. Þar er hvort sem er hægt láta fara vel um sig […]
Lesa Meira- 50m2
- 4 manns
- 2 herbergi + svefnloft
- Baðherbergi
- Eldhús
- Frítt net
- Verönd
- Grill

Andabyggð – Bed & breakfast
Viltu borða morgunbrauðið með öndunum? Við erum meðal annars með klassískan „Bed & Breakfast“ gististað sem heitir Andabyggð. Já, þú last rétt; Andabyggð, til heiðurs öllum þeim margvíslegu andategundum sem […]
Lesa Meira- 2 manna
- 1 herbergi - 12m2
- Tvíbreitt eða einbreitt
- Sér baðherbergi með sturtu
- Morgunverður
- Frítt net
- Verönd

Hraunbrún – Farfuglaheimili
Sofið á hraunbrúninni. Ef til vill heldur þú að farfuglaheimili séu hvert öðru lík en Hraunbrún hefur nokkuð sem ekkert annað farfuglaheimili hefur. Eins og nafnið gefur til kynna þá […]
Lesa Meira- 4 rúm, kojur í blönduðu herbergi - 9m2
- Sameiginlegar sturtur og snytingar
- Sameiginlegt eldhús
- Verönd
- Frítt net
- Grill

Kytrur – smæstu smáhýsin
Kytrur – tjaldútilega í húsi. Ef þú elskar útilegur en vilt sofa undir þaki þá skaltu leigja þér kytru. Kytrurnar eru næsta þrep fyrir ofan tjald, örlítil timburhús þar sem […]
Lesa Meira- 2 manns
- 9 m2
- Heitar sturtur (Tjaldsvæðið)
- Snyrtingar (Tjaldsvæðið)
- Eldunar aðstaða (Tjaldsvæðið)
- Uppþvotta aðstaða (Tjaldsvæðið)
- Frítt net
- Grill

Tjaldsvæðið
Njóttu hvíldar í íslenskri náttúru Hjá Hlíð ferðaþjónustu höldum við í þá íslensku hefð að skipta tjaldsvæðinu ekki í föst stæði. Þú velur þér einfaldlega þann stað sem þér líst […]
Lesa Meira- Heitar sturtur
- Klósett
- Rafmagn
- Eldhús
- Uppþvotta aðstaða
- Frítt net
- Grill
Eldá
Gisting í þéttbýliskjarna með ævintýrin á næsta leiti
Það er ekki alltaf nauðsynlegt að velja annan kostinn af tveimur. Stundum er hægt að njóta þess besta úr báðum heimum. Gistihúsið og íbúðirnar á Eldá, í þorpinu Reykjahlíð, eru örfá skref frá þeirri þjónustu sem býðst „uppi í Þorpi“ meðal annars matvöruverslun og vínbúð en athugið að ÁTVR er með lokað á laugardögum og sunnudögum. Álíka örfá skref eru svo út í náttúruna með allri sinni fegurð og ævintýrum.

Eldá Guesthouse
Gisting í þéttbýliskjarna með ævintýrin á næsta leiti. Það er ekki alltaf nauðsynlegt að velja annan kostinn af tveimur. Stundum er hægt að njóta þess besta úr báðum heimum. Gistihúsið […]
Lesa Meira- 2-3 manns í herbergi
- Tveggja manna og þriggja manna, einbreið og tvíbreið rúm
- Morgunverður (valkostur utan háannatíma)
- Sameiginlegt eldhús
- Sameiginlegar sturtur og snyrtingar
- Verönd
- Frítt net
- grill

Eldá Apartments
Gisting í þéttbýliskjarna með ævintýrin á næsta leiti Það er ekki alltaf nauðsynlegt að velja annan kostinn af tveimur. Stundum er hægt að njóta þess besta úr báðum heimum. Gistihúsið […]
Lesa Meira- Allt að 10 manns
- 2, 3 & 4 herbergja íbúðir
- Sér eldhús
- Sér sturtur og snyrtingar
- Morgunverður (valkostur)
- Frítt net
- Grill