Bóka

Eldá – Herbergi með sér baðherbergi.

Gisting í þéttbýliskjarna með ævintýrin á næsta leiti

Það er ekki alltaf nauðsynlegt að velja annan kostinn af tveimur. Stundum er hægt að njóta þess besta úr báðum heimum. Gistihúsið og íbúðirnar á Eldá, í þorpinu Reykjahlíð, eru örfá skref frá þeirri þjónustu sem býðst „uppi í Þorpi“ meðal annars matvöruverslun og vínbúð en athugið að ÁTVR er með lokað á laugardögum og sunnudögum. Álíka örfá skref eru svo út í náttúruna með allri sinni fegurð og ævintýrum.

Íbúðirnar, Eldá Apartments, henta fullkomlega fyrir þau sem vilja vera út af fyrir sig.

Í nýuppgerðu íbúðunum okkar á Eldá bjóðum við uppá tveggja manna herbergi, með stóru rúmi (180×200 cm) og sérbaðherbergi. Íbúðirnar samanstanda af tveimur svefnherbergjum með sérbaðherbergi. Herbergin eru leigð út aðskilin. Herbergin deila síðan sameiginlegu fullbúnu eldhúsi, og stofu með sófa og sjónvarpi.

Morgunverðar upplýsingar

Continetal, vegetarian, vegan, gluten-free, hlaðborð

Bóka

Aðstaða

  • Tvegga manna herbergi
  • Sér baðherbergi
  • Eldhús deilt með öðrum
  • Stofa deilt með öðrum
  • Sjónvarp
  • Frítt net

Þjónusta

  • Þvotta þjónusta
  • Hjólaleiga